Útstillingar
Nám í útstillingum er bæði verklegt og bóklegt og tekur að jafnaði 4 annir.
Almennar greinar 23 ein.
|
Íslenska |
ÍSL 102 202 STÆ 102 122 ENS 102 DAN 102 + 4 einingar í ensku eða dönsku LKN 103 ÍÞR 101 111 201 211 |
Sérgreinar 57 ein.
|
Efnisfræði og leturgerð |
EFL 103 |
Tillaga að námsskipulagi eftir önnum
Efnisinnihald námsins
Umræður og umfjöllun um helstu hugmyndir sem liggja að baki sölu-og markaðssetningu vöru frá sálfræði-og markaðsfræðilegu sjónarhorni, með það að markmiði að koma vöru á framfæri á jákvæðan hátt til neytandans.
Áhersla á góð tengsl náms og atvinnulífs með hliðsjón af kröfum atvinnulífsins hverju sinni.
Þjálfun í framsetningu hugmynda og upplýsingaöflun í tengslum við fjölbreytt verkefni.
Þjálfun í samvinnu við aðila sem tengjast ólíkum verkefnum og samræmingu hugmynda í þágu þeirra markmiða sem sett hafa verið hverju sinni.
Markmið námsbrautarinnar eru:
- Að nemendur öðlist þekkingu á markaðnum sem geri þá hæfa til að þróa og úrfæra hugmyndir og leiðir til að koma vörum á framfæri í samvinnu við verslun og viðskiptalíf.
- Að nemendur séu færir um að koma hugmyndum sínum á blað í skissuformi yfirfæra þær síðan í skissu af ákveðnu rými í réttum hlutföllum og þaðan í þrívíða útstillingu.
- Að nemendur þekki og geti notað helstu verkfæri sem tilheyra verkfæratösku útstillara.
- Að nemendur snerti á einfaldri líkanagerð og vinni með hlutföll, sem nýtist við hönnun sýningarýmis.
- Að nemendur efli skilning sinn á markvissri notkun lita og forma til að draga fram þau áhrif sem þeir ætla að ná hverju sinni og kynnist mikilvægi réttrar lýsingar í verslunargluggum.
- Að nemendur verði færir um að draga fram ólík hughrif og stemningu eftir því sem við á hvort sem um er að ræða tískufatnað eða verkfæri.
- Að nemendur öðlist reynslu í að afla sér þeirra upplýsinga sem þá vantar til að ná markmiðum sínum.
Leit á vefnum
Flýtileiðir
Myndir




























