Útstillingar
Nám í útstillingum er að jafnaði 2 ár og skiptist í verklegt og bóklegt nám. Verklegi hlutinn felst í vinnu á verkstæði skólans fyrstu tvær annirnar en skiptist síðan milli verkstæðis og vinnu í verslunum ýmist undir handleiðslu kennara eða fagfólks á staðnum. Meginmarkmið námsins er að þjálfa nemendur til sjálfstæðra vinnubragða og gera þá færa um að meðhöndla vörur, sjóngrip, liti, form og annað sem máli skiptir við vöruframsetningu. Einnig er lögð áhersla á að nemendur öðlist hagnýta og fagurfræðilega þekkingu í að stilla út vörum og munum.
Leit á vefnum
Flýtileiðir
Myndir




























