Tækniteiknun
Deildarstjóri: Þorsteinn Haraldsson
Námstími í tækniteiknun er 3 ár eftir grunnskólapróf en nemendur með stúdentspróf geta lokið því á 2 árum. Í náminu er lögð áhersla á almenna tölvunotkun og tölvuteikningu. Kappkostað er að bjóða nemendum að nota nýjustu teikni- og hönnunarforrit sem völ er á hverju sinni t.d. AutoCAD. Markmið námsins er að mennta tækniteiknara til starfa á teiknistofum fyrirtækja, ráðgefandi verkfræðinga, arkitekta, ríkisstofnana, bæjarfélaga o.fl.
Leit į vefnum
Flżtileišir
Myndir




























