Beint á leiðarkerfi vefsins

 

Reglur um skólasókn

  1. Nemendum er skylt að sækja allar kennslustundir 100%.
  2. Forfallist nemandi af óviðráðanlegum ástæðum verður hann samt að skila tilskildum verkefnum í áfanganum.
  3. Veikindi ber að tilkynna á skrifstofu skólans að morgni hvers dags sem nemandinn er veikur.
  4. Forráðamanni nemanda yngri en 18 ára ber að tilkynna veikindi nemandans.
  5. Langvarandi og þrálát veikindi skal staðfesta með læknisvottorði* sérfræðings.
  6. Gerð er krafa um 80% raunmætingu.
  7. Hver kennari skráir hjá sér viðveru daglega og hann upplýsir nemendur reglulega um stöðu hvers og eins í viðkomandi áfanga.
  8. Nemendur með sérþarfir geta sótt um undanþágu á skólasókn með samningi sem gera þarf í upphafi hverrar annar.
  9. Nemandi er sjálfur ábyrgur fyrir mætingum sínum.

* Sjá kafla 3.6. í skólanámskrá.


Utanskólanám

Forsendur þess að nemanda sé heimilað að stunda nám utan skóla eru:

  • að hann hafi lokið minnst einni önn í framhaldsskóla,
  • að hann hafi náð þeim árangri í námi, að mati skólans, að hann geti talist fullfær um að skipuleggja sjálfstætt nám í áfanganum.

Utanskólanemanda ber að fylgja eftirtöldum reglum, að öðrum kosti glatar hann rétti til að þreyta próf í viðkomandi áfanga:

  • Nemandi skal skrá sig utanskóla eigi síðar en 10 dögum eftir að önnin hefst.
  • Kennara í námsgreininni er falið að hafa tengsl við og umsjón með vinnu hvers utanskólanemanda og skal nemandinn hafa samband við hann á ákveðnum viðtalstímum.
  • Utanskólanemandi hefur fulla skilaskyldu á öllum verkefnum og skulu gæði verkefnanna fullnægja þeim kröfum sem kennarinn gerir til samþykktra verkefna.
  • Utanskólanemanda ber að skila verkefnum til kennara síns á tilsettum skiladögum.


P-nám

Nemanda er heimilt að stunda nám án skólasóknar, P-nám, í áfanga hafi hann hlotið einkunnina 9 í undanfara. Reglur um slíkt nám eru þær sömu og við utanskólanám. Margar greinar skólans eru þess eðlis að ekki er hægt að stunda nám í þeim utanskóla eða sem P-nám.

 


EnskaSkólavefurinnNámskjárinnInna nemendurMenntagáttIðan -fræðsluseturSamband íslenskra framhaldsskólanema MenntamálaráðuneytiðReykdalsfélagiðWorldSkills

Stjórnborð

Stækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Flýtileiðir


Myndir


Vefir

  • Almennt nám
  • Byggingagreinar
  • Hársnyrtiiðn
  • Listnám
  • Málmiðnir
  • Rafiðnir
  • Tækniteiknun
  • Útstillingar