Nemendur mæti stundvíslega í allar kennslustundir.
Nemendur sýni ávallt fyllstu kurteisi og tillitssemi í umgengni og gæti þess að valda ekki öðrum ónæði á starfstíma skólans.
Nemendur gangi hreinlega og prúðmannlega um húsakynni skólans og fari vel með muni hans.
Ef nemandi veldur skemmdum á húsnæði eða munum skólans ber honum að bæta tjónið.
Nemendur séu snyrtilegir í klæðaburði.
Nemendur geymi ekki peninga eða önnur verðmæti í yfirhöfnum eða töskum sem eru á almannafæri.
Öll notkun á tóbaki er bönnuð í skólanum og á lóð hans.
Neysla áfengis eða annarra vímugjafa er bönnuð innan skólans. Óheimilt er að vera undir áhrifum slíkra efna í húsakynnum skólans, eða hafa slík efni undir höndum þar.
Auglýsingatöflur í skólanum eru ætlaðar fyrir auglýsingar verðandi skólahald og félagslíf nemenda. Sérstakt leyfi þarf til að festa upp aðrar auglýsingar.
Óheimilt er að neyta matar, sælgætis og drykkja í kennslustofum.
Notkun farsíma er óheimil í öllum kennslurýmum í húsinu.
Nemendum ber að hlíta reglum um bifreiðastæði.
Brjóti nemendur gegn reglum þessum verður það tekið fyrir í skólaráði.
Veikindi ber að tilkynna daglega á skrifstofu skólans.