Námsval
Við upphaf skólagöngu hefja nemendur nám í áföngum innan þeirra brauta sem þeir hafa valið. Mikilvægt er að nemendur ræði séróskir við náms- og starfsráðgjafa eða við starfsfólk skólans sem vinnur við innritun.
Stundatöflur
Í skólanum er útbúin sérstök stundatafla fyrir hvern nemanda. Það er eðlilegt að fjöldi kennslustunda hjá nemanda í fullu námi sé á bilinu 19 – 21 kennslustund á viku. Hver kennslustund er 75 mínútur. Stundatöflur eru að jafnaði afhentar við skólasetningu. Áfangastjóri hefur umsjón með stundatöflugerðinni og sér um nauðsynlegar breytingar.
Valdagur
Á seinni hluta hverrar annar er valdagur sem auglýstur er sérstaklega á dagatali skólans. Á valdegi yfirfara nemendur og staðfesta val fyrir næstu önn með aðstoð umsjónarkennara. Valið er bindandi. Stundum þarf að breyta vali nemenda til þess að unnt sé að setja saman stundaskrá. Nemendum er bent sérstaklega á að einstaka áfangar eru einungis í boði aðra hverja önn. Allir nemendur skulu skila valblaði, einnig þeir sem ákveða að gera hlé á námi sínu eða hætta í skólanum. Útfyllt valblað gildir sem umsókn um skólavist á næstu önn og gíróseðlar með skólagjöldum eru sendir út með tilliti til þess. Nánara fyrirkomulag á þessum degi er auglýst hverju sinni.
Töflubreytingadagur
Gefinn er stuttur tími til töflubreytinga í upphafi hverrar annar og er hann auglýstur sérstaklega hverju sinni. Þegar frestur til töflubreytinga er útrunninn getur nemandi ekki sagt sig úr áfanga, en ákveði hann að hætta samt sem áður fær hann fall í áfanganum.
Valáfangar
Nemendafjöldi skólans takmarkar þann fjölda áfanga sem unnt er að bjóða í frjálsu vali og er það því bundið að verulegu leyti. Við ákvörðun valáfanga er stuðst við námskrár og þekkt viðhorf í atvinnugreinum.
Sérþarfir í námi
Vitneskja um þarfir nemenda sem þurfa sérstaka aðstoð og stuðning í námi þarf að liggja fyrir strax við innritun. Er þá hægt að taka afstöðu til þess hvort skólinn hafi tök á að koma til móts við þessa nemendur eins vel og kostur er. Nemendur geta sótt um sérstaka aðstoð hjá náms- og starfsráðgjafa eða sérkennara skólans. Aðstoðin felur í sér reglulega stuðningstíma í íslensku, stærðfræði og dönsku samkvæmt skipulagi og ráðgjöf sérkennarans. Þeim stendur einnig til boða að sækja um sérstaka áfanga s.s. námstækni (NÁM101) og hraðlestur (LES101) en markmið þeirra er að styðja og styrkja nemendur með sértæka námsörðugleika.
Heimanám
Nám við skólann krefst mismikils heimanáms. Mælt er með því að nemendur sem telja sig hafa þörf fyrir aðstoð við heimanám hafi samband við umsjónarkennara sinn eða námsráðgjafa og leiti upplýsinga um þá þjónustu sem þeim stendur til boða í skólanum.
Leit á vefnum
Flýtileiðir
Myndir




























