Námssamningar

Námssamningar

Nemendur sem stunda nám á námsbrautum sem leiða til lögverndaðra starfsréttinda s.s. í bygginga- og mannvirkjagreinum, hársnyrtiiðn, málmiðnum og rafiðnum stunda nám innan svonefnds meistarakerfis. Í meistarakerfi geta nemendur:

  • gert námssamning við iðnmeistara og lokið almennu bóknámi og fagbóklegu námi skv. námskrá skólans.
  • innritast í grunndeild brautarinnar þar sem námið tekur 1 til 2 ár. Þegar námi í grunndeild er lokið gerir nemandinn námssamning við iðnmeistara um starfsþjálfun í atvinnulífinu og lýkur námi að öðru leyti sbr. ofanritað.

Nemendur verða að vera orðnir 16 ára til að mega fara á námssamning.

Nemendur á fyrrnefndum námsbrautum eru hvattir til að kynna sér nánar reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun og um sveinspróf sem finna má á vef Iðunnar: http://www.idan.is/namssamningar/



Eldra efni