Námsmat og próf
Í upphafi hverrar annar eru nemendum kynntar kennsluáætlanir og námsmarkmið, svo og tilhögun námsmats í hverjum áfanga. Kennsluáætlanir innihalda m.a. markmið námsins, kennslubækur og gögn, áætlaða yfirferð námsefnis, fyrirhugaða verkefnavinnu og verkefni sem eru greidd með efnisgjöldum, hvaða verkefni eru skilaskyld og skilatíma. Kennarar meta úrlausnir nemenda í samráði við deildarstjóra. Hefðbundið námsmat í bóklegum greinum er að lokapróf gildir 2/3 og vetrareinkunn 1/3 af lokaeinkunn. Í verklegum greinum gildir lokapróf 1/3 og vetrareinkunn 2/3 af lokaeinkunn. Í einstökum áföngum er vikið frá þessum reglum með sérstökum verkefnum eða skriflegum æfingum.
Einkunnagjöf
Einkunnir eru gefnar í heilum tölum frá 1 til 10 og er eftirfarandi haft til hliðsjónar:
-
10 u.þ.b. 95 – 100 % markmiða náð
-
9 u.þ.b. 85 – 94 % markmiða náð
-
8 u.þ.b. 75 – 84 % markmiða náð
-
7 u.þ.b. 65 – 74 % markmiða náð
-
6 u.þ.b. 55 – 64 % markmiða náð
-
5 u.þ.b. 45 – 54 % markmiða náð
-
4 u.þ.b. 35 – 44 % markmiða náð
-
3 u.þ.b. 25 – 34 % markmiða náð
-
2 u.þ.b. 15 – 24 % markmiða náð
-
1 u.þ.b. 0 – 14 % markmiða náð
Til að standast próf í áfanga og fá leyfi til að hefja nám í næsta áfanga á eftir þarf nemandi að fá lágmarkseinkunnina 5. Þó er nemanda heimilt að útskrifast með einkunnina 4 ef um lokaáfanga eða stakan áfanga er að ræða. Þessir áfangar gefa ekki einingar. Nemandi þarf þá að ná heildareiningarfjölda brautar með öðrum hætti. Í skólum sem starfa eftir áfangakerfi er ekki reiknuð meðaleinkunn.
Prófareglur og prófatími
Regluleg próf eru tvisvar á ári í maí og desember.
Um próftöku í skólanum gilda eftirfarandi reglur:
Allir sem stundað hafa nám í áfanganum og ekki fyrirgert próftökurétti vegna fjarvista eða vanskila á verkefnum hafa rétt til að þreyta lokapróf í áfanganum.
Þeir sem féllu í viðkomandi áfanga næstu önn á undan vegna vanskila á verkefnum eða falleinkunnar hafa rétt til að skrá sig í lokapróf í áfanganum svo framarlega sem þeir hafa skilað verkefnum í samræmi við námsáætlun kennara í áfanganum.
Utanskólanemar sem hafa innritað sig í próf við upphaf annar og skilað tilskildum verkefnum hafa rétt til að þreyta lokapróf í áfanganum.
Persónuskilríki
Nemendum ber að framvísa persónuskilríkjum í öllum prófum.
Veikindi í prófum
Veikindi þarf að tilkynna samdægurs á skrifstofu áður en próf hefst. Sjúkrapróf eru haldin eftir að öllum prófum lýkur og þarf að greiða sérstaklega fyrir þau. Nemendur sem framvísa læknisvottorði þurfa ekki að greiða fyrir sjúkrapróf.
Frávik frá prófareglum
Nemendur sem skilað hafa greiningu til námsráðgjafa geta fengið sérúrræði í prófum. Þessi sérúrræði geta verið lengri próftími, upplestur, tölvur og sérstofa.
Endurtökupróf eru haldin eftir þörfum og þá við upphaf haust- og vorannar.
Birting einkunna og prófasýning
Upplýsingar um prófárangur eru ekki veittar fyrr en við afhendingu einkunna, sem er fljótlega að loknu síðasta prófi samkvæmt próftöflu. Prófasýning fer fram sama dag og einkunnir eru afhentar.
Varðveisla prófúrlausna
Prófúrlausnir eru varðveittar í eitt ár. Að þeim tíma liðnum ber skólameistari ábyrgð á að eyða öllum skriflegum prófúrlausnum.
Mat á námi úr öðrum skólum
Ef nám er metið úr öðrum skóla er þess sérstaklega getið á námsferli. Skólinn tekur tillit til reglna fyrri skóla í atriðum sem geta haft áhrif á einingastöðu nemandans.
Viðbótarnám til stúdentsprófs
Nemendur sem ljúka skilgreindu starfsnámi á framhaldsskólastigi eiga kost á viðbótarnámi til undirbúnings námi á háskólastigi. Slíku námi lýkur með stúdentsprófi sem er samræmt í tilteknum greinum. Enn sem komið er þurfa nemendur að ljúka þessum einingum í öðrum framhaldsskólum. Til þess að fá starfsnám auk viðbótarnáms viðurkennt til stúdentsprófs skal heildarviðbótarnám nemenda vera sem hér segir:
- Nemendur með þriggja til fjögurra ára starfsnám 45 ein.
- Nemendur með tveggja til þriggja ára starfsnám 84 ein.
Námsframvinda
Nemandi skal ljúka 9 einingum á önn hið minnsta eða 18 einingum á tveim samfelldum önnum. Undanþágur frá þessu eru veittar hjá þeim sem skráðir eru með 9 einingar eða minna í stundatöflu í upphafi annar. Falli nemandi á önn þ.e. ljúki ekki ofanskráðum einingafjölda standa einungis þeir áfangar eftir þar sem nemandi hefur fengið einkunnina 7 eða hærra.
Úrsögn úr skóla
Nemandi sem segir sig úr skóla verður að gera það skriflega. Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára verða að skrifa undir úrsögn. Eyðublöð fást á skrifstofu.
Veikindi
Eins og skólasóknarreglur kveða á um verður að tilkynna veikindi daglega á skrifstofu. Nemandi sem á við langvarandi veikindi að stríða og sem vitað er um áður en skólaganga hefst skal tilkynna það til náms- og starfsráðgjafa og skila inn læknisvottorði því til staðfestingar. Langvarandi veikindi sem koma upp eftir að skólavist er hafin ber að staðfesta með læknisvottorði. Öll vottorð þarf að endurnýja í upphafi nýrrar annar. Ef um endurtekin veikindi er að ræða er skóla heimilt að vísa nemanda til trúnaðarlæknis skólans.
Nemendur sem vegna veikinda sinna hafa ekki fulla skólasókn hafa fulla skilaskyldu varðandi;
- verkefna
- verklegra æfinga
- prófa sem kennari gerir kröfur um að nemendur þreyti
Nemanda ber sjálfum að fylgjast með hvaða verkefni og próf kennari gerir kröfu um að sé skilað.
Þar sem mætingareinkunn hefur áhrif á vetrareinkunn kemur vottorð ekki til leiðréttingar á mætingu. Í kennsluáætlun hvers áfanga kemur fram hvernig námsmati er háttað.

