Námsframboð

Námsframboð

Margar námsleiðir eru í boði við skólann auk ýmiskonar námskeiða.   Hér verður gefið yfirlit yfir helstu námssvið skólans:

Almennt nám
Markmið almenna námsins er að efla frumkvæði og sjálfstæði til menntunar á eigin forsendum. Námið er annars vegar ætlað nemendum sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi með fullnægjandi árangri og hins vegar nemendum sem eru óákveðnir. Áhersla er lögð á að bæta undirstöðu nemenda í kjarnagreinum sem eru íslenska, stærðfræði, enska, danska, lífsleikni og líkams- og heilsurækt. Einnig kynnast nemendur námstækni, frumkvöðlanámi og ýmsum verklegum greinum. Að námi loknu eiga nemendur að vera færir um að hefja nám á einhverri af brautum skólans.

Bygginga- og mannvirkjagreinar
Nám í bygginga- og mannvirkjagreinum hefst með einnar annar sameiginlegu grunnnámi en að því loknu velja nemendur fagnám í húsasmíði, húsgagnasmíði, málaraiðn, múraraiðn, pípulögnum eða veggfóðrun. Fagnámið skiptist í tvennt, annars vegar bóklegt og verklegt nám í skóla og hins vegar vinnustaðanám. Skólinn býður fagnám í húsasmíði, húsgagnasmíði og pípulögnum. Heildarnámstími er að jafnaði 4 ár og þar af er samningsbundið vinnustaðanám 18-30 mánuðir eftir iðngreinum. Náminu lýkur með sveinsprófi.

Hársnyrtiiðn
Nám í hársnyrtiiðn tekur 4 ár og er um helmingur þess samningsbundið vinnustaðanám. Starfssvið hársnyrta er umhirða hárs og leiðsögn við meðferð þess, ásamt litun og hönnun hárgreiðslu með hliðsjón af óskum viðskiptavina. Markmið náms í hársnyrtiiðn er að nemar hafi við lok námsins öðlast nægilega fræðilega og faglega þekkingu og reynslu, til þess að veita viðskiptavinum persónulega þjónustu á sínu sérsviði. Náminu lýkur með sveinsprófi.�

Listnám
Skólinn býður upp á nám á listnámsbraut með kjörsvið í almennri hönnun. Almenn hönnun er skilgreind sem þrívíddarhönnun, undirstaða fjöldaframleiðslu og hönnunar rýmis. Nemendur eru þjálfaðir í að tjá hugmyndir sýnar á myndrænan hátt og vinna með  hönnunarverkefni frá hugmynd til lokaútfærslu. Verkleg kennsla er á verkstæðum skólans og þar geta nemendur raungert hugmyndir sínar. Með námi á listnámsbraut er lagður grunnur að frekari hönnunarnámi í sérskólum eða á háskólastigi. Námstími er að jafnaði 3 ár, en hægt er að bæta við sig einingum og afla sér almennra réttinda til náms á háskólastigi. 

Nemendur með stúdentspróf geta lokið náminu á 2 árum.�

Málmiðnir
Nám í fyrri hluta málmiðngreina tekur 2 ár. Framhaldsnám í þremur faggreinum er einnig í boði og geta nemendur lokið því á 1 ári. Faggreinarnar eru blikksmíði, rennismíði og vélvirkjun. Eftir að nemendur hafa lokið faggreinum tekur við 15 mánaða samningsbundið vinnustaðanám hjá iðnmeistara sem lýkur með sveinsprófi.

Skólinn sérhæfir sig innan málmiðngreina í rennismíði og kennir m.a. nýja tækni í notkun á tölvustýrðum rennibekk og fræsivél.�

Rafiðnir
Við skólann er hægt að klára samningsbundið nám í rafvirkjun og fyrrihluta náms í rafeindavirkjun.  Nemendur geta valið milli rafvirkjunar eða rafeindavirkjunar en fyrsta árið er sameiginlegt og kallast grunndeild rafiðna.  Heildarnámstími er um það bil 4 ár og líkur með sveinsprófi.

Störf rafiðnaðarmanna eru fjölbreytt og mikil eftirspurn er eftir fólki með sérþekkingu á sviði rafiðna í atvinnulífinu. Sem dæmi má nefna raflagnir í nýbyggingar, uppsetningar og viðhald á fjarskipta- og tölvubúnaði, viðgerðir á heimilistækjum og umsjón með tölvukerfum.�


Tækniteiknun
Í námi í tækniteiknun er lögð áhersla á almenna tölvunotkun og tölvuteikningu. Skólinn hefur kappkostað að bjóða nemendum sínum að nota nýjustu forrit sem völ er á hverju sinni og fylgir því markaðnum vel eftir.  Gera má ráð fyrir að meðalnámstími eftir grunnskólapróf sé 3 ár en 2 ár eftir stúdentspróf.

Námið er ætlað til þess að mennta tækniteiknara til starfa á teiknistofum fyrirtækja, ráðgefandi verkfræðinga, arkitekta, ríkisstofnana, bæjarfélaga o.fl. Þar að auki er námið góður undirbúningur til frekara náms á ýmsum sviðum tengdum tækni og hönnun.�
 �
Námskeið
Auk hefðbundinna námsbrauta eru ýmiskonar námskeið í boði innan skólans. Má þar nefna kennslu á AutoCad teikniforrit, trefjaplasttækni, eldsmíði, CNC tækni á tölvustýrðan rennibekk og fræsivél, steinaslípun, glerbræðslu o.fl. Einnig eru haldin ýmiskonar endurmenntunarnámskeið fyrir iðnaðarmenn í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins.

Markmið náms í framhaldsskólum

Markmið náms á framhaldsskólastigi er í megindráttum þríþætt:

  • að veita hverjum og einum menntun sem nýtist í daglegu lífi og tómstundum
  • að veita undirbúning til áframhaldandi náms í sérskólum eða háskólum og
  • að veita undirbúning til ákveðinna starfa í atvinnulífinu.,

Við ákvörðun á námsframboði og skipulagningu kennslu skal leitast við að skapa skilyrði til að þessum markmiðum verði náð.

Valáfangar

Nemendafjöldi skólans takmarkar möguleikana á fjölda áfanga sem unnt er að bjóða í frjálsu vali og er það því bundið að verulegu leyti. Við ákvörðun um valáfanga er stuðst við námskrár faggreinanna og þekkt viðhorf í atvinnugreininni .

Valdagur

Á valdegi skulu nemendur með aðstoð umsjónarkennara yfirfara og staðfesta val fyrir næstu önn. Valið er bindandi. Stundum þarf að breyta vali nemenda til þess að unnt reynist að setja saman stundaskrá. Nánara fyrirkomulag á þessum degi er auglýst hverju sinni.

Forval

Skólastjórn er heimilt að hafa forval til að kanna vilja nemenda í því skyni að afmarka framboð áfanga fyrir endanlegan valdag.

Skólastjórn er heimilt að hafa forval til að kanna vilja nemenda í því skyni að afmarka framboð áfanga fyrir endanlegan valdag.

Töflubreytingadagur

Í upphafi hverrar annar er sérstakur dagur þar sem nemendur geta óskað eftir breytingum á stundatöflum sínum. Töflubreytingar eru ekki gerðar á öðrum tíma.

Heimild til að breyta vali

Treysti nemandi sér ekki til að stunda nám í öllum þeim áföngum sem hann hefur valið og fengið inn í töflu, er honum heimilt að hætta námi í tilteknum áföngum á töflubreytingardegi, eða samkvæmt auglýsingu. Eftir töflubreytingardag getur nemandi sagt sig úr áfanga í samráði við áfamgastjóra.



Eldra efni