Meðferð mála
Leitast er við að leysa ágreiningsmál innan skólans. Umsjónarkennarar og náms- og starfsráðgjafi eru hafðir með í ráðum við lausn ágreiningsmála sem varða skjólstæðinga þeirra. Ágreiningsmálum, sem varða einstaka nemendur og ekki leysast í samskiptum einstaklinga er vísað til skólaráðs. Nemandi fær viðvörun áður en til refsingar kemur nema brotið sé þess eðlis að því verði ekki við komið, svo sem brot á almennum hegningarlögum. Áminningar vegna brota á skólareglum eru skriflegar. Halda skal skrá yfir þau ágreiningsmál sem kunna að koma upp innan skólans eða þegar um brot á skólareglum er að ræða. Við meðferð mála skal sérstaklega gæta ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000 og upplýsingalaga nr. 50/1996. Leitast er við að afgreiða brot á skólareglum með skjótum hætti.
Samskipti nemenda og starfsfólks skólans
Rísi ágreiningur milli nemenda, kennara og/eða annarra starfsmanna skólans og takist hlutaðeigandi ekki að finna lausn á málinu skal því vísað til skólameistara. Uni málsaðilar ekki niðurstöðu skólameistara má vísa málinu til menntamálaráðuneytisins. Telji nemandi eða forráðamenn hans að brotið hafi verið á rétti nemandans, sbr. skólareglur, þannig að ástæða sé til að bera fram kvörtun skulu þeir snúa sér til viðkomandi kennara, umsjónarkennara eða skólameistara. Takist ekki að leysa málið tekur skólameistari það til umfjöllunar og ákvarðar um viðbrögð. Með sama hætti getur kennari eða annar starfsmaður skóla sem telur að brotið hafi verið á rétti sínum með einum eða öðrum hætti komið kvörtun sinni til skólameistara.
Agamál
Skólinn fylgir eftirfarandi vinnuferli í meðferð agamála. Markmiðið er að tryggja vinnufrið nemenda og kennara í skólanum sem og aukinn árangur í skólastarfinu.
- Nemandi sem truflar ítrekað kennslustund eða brýtur skólareglur fær munnlega viðvörun sem er skráð í athugasemdir Innu, upplýsingakerfi framhaldsskólanna.
- Nemandi sem heldur áfram að trufla skólastarfið þrátt fyrir munnlega viðvörun fær skriflega viðvörun sem einnig er send heim til forráðamanna.
- Nemanda, sem truflar áfram í skólastarfinu þrátt fyrir munnlega og skriflega viðvörun, verður vísað úr skóla enda sé litið svo á að skólinn hafi gert sitt til að afstýra þessari niðurstöðu þar sem ekki hafi orðið breyting á hegðun nemandans og hann því ekki hæfur til að vistast í skólanum.
Misferli í prófum
Nemanda, sem staðinn er að misferli í prófi, er vísað frá því og getur hann átt von á brottvikningu úr skóla, tímabundið eða til frambúðar, eftir alvarleika brots. Hið sama gildir um misferli þar sem námsmat felst í öðru en skriflegu eða munnlegu prófi.
Ágreiningur um námsmat
Komi upp ágreiningur milli nemanda og kennara um mat úrlausnar sem ekki tekst að leysa innan skólans skal skólameistari kveða til prófdómara til þess að fara yfir úrlausnina að höfðu samráði við deildarstjóra. Úrskurður prófdómara skal gilda. Um meðferð ágreiningsmála vegna árangurs á sveinsprófum ber að fjalla samkvæmt gildandi reglugerð þar um.
Brot á reglum um skólasókn
Á grundvelli reglna um skólasókn er hægt að vísa nemanda úr einstökum áföngum eða úr skóla vegna lélegrar skólasóknar. Nemandi fær þá skriflega viðvörun frá stjórnanda þegar ljóst er að í óefni stefnir. Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára fá heimsent afrit. Endanleg brottvikning er á ábyrgð skólameistara og skal hann leita umsagnar skólaráðs áður en til hennar kemur. Nemandi, sem vikið er úr einstökum áföngum eða úr skóla vegna lélegrar skólasóknar, fær ekki að taka próf í viðkomandi grein/greinum í lok annarinnar.
Ágreiningur um námsframvindu
Ágreiningsmál um námsframvindu eða undanþágubeiðnir skulu koma til umfjöllunar í skólaráði. Skólameistari sker úr um slík mál. Uni nemandi ekki þeim úrskurði má vísa málinu til menntamálaráðuneytisins.





