Beint á leiðarkerfi vefsins

 

Kennsluhættir

Námsframboð skólans kallar á  fjölbreytta kennsluhætti, allt frá einstaklingskennslu til fyrirlestra í fjölmennum hópum. Í almennum greinum er verið að auka tölvunotkun í bland við hefðbundna kennsluhætti, þar sem kennari setur fyrir tiltekið námsefni og leggur fyrir verkefni því tengt. Iðnnámið byggir á notkun véla og tækja og felst hluti verklegu kennslunnar í sýnikennslu og leiðbeiningum um notkun þeirra. Í listnáminu vinna nemendur með eigin hugmyndir, teikna og smíða eftir þeim hluti. Nemendur afla sér upplýsinga um smíðaefni, aðferðir, tækni og tæki og skila skriflegum verkefnum í tengslum við viðfangsefni sín. Teiknikennslan felst m.a. í verkefnavinnu og kennslu á hin ýmsu teikniforrit. Í kennsluáætlunum koma fram nánari lýsingar á námsefni og kennsluaðferðum.

Námsgögn

Nemendur þurfa að afla sér þeirra námsgagna sem tilgeind eru á bókalistum og í kennsluáætlunum og einnig þeirra sem kennarinn telur nauðsynlegar vegna kennslunnar þótt þeirra sé ekki sérstaklega getið. Auk hefðbundinna kennslugagna býður skólinn góðan tækja- og vélakost, fjölbreytt úrval efna og aðstöðu til mælinga, tilrauna, æfinga og smíða.


EnskaSkólavefurinnNámskjárinnInna nemendurMenntagáttIðan -fræðsluseturSamband íslenskra framhaldsskólanema MenntamálaráðuneytiðReykdalsfélagiðWorldSkills

Stjórnborð

Stækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Flýtileiðir


Myndir


Vefir

  • Almennt nám
  • Byggingagreinar
  • Hársnyrtiiðn
  • Listnám
  • Málmiðnir
  • Rafiðnir
  • Tækniteiknun
  • Útstillingar