Inntökuskilyrði

Innritun

Innritun fer fram rafrænt á www.menntagatt.is

Eftirfarandi reglur gilda um innritun:

  • Nemendur, sem lokið hafa námi í grunnskóla eða hlotið aðra jafngilda menntun, eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla.
  • Nemendur, sem orðnir eru 18 ára, geta hafið nám í framhaldsskóla án þess að fullnægja framangreindum skilyrðum.
  • Nemendur sem ná öllum samræmdum greinum á grunnskólaprófi ganga fyrir við innritun á námsbrautir skólans.
  • Til þess að innritast á iðnnámsbrautir skólans þurfa nemendur að lágmarki að hafa lokið prófi í stærðfræði og íslensku með einkunnina 5.
  • Til þess að innritast á listnámsbraut er æskilegt að nemendur hafi einnig lokið námi í verk- eða listnámi viðkomandi grunnskóla.
  • Nemendur sem flytja sig á milli framhaldsskóla, skila inn staðfestum námsferli um fyrra nám.

Efnisgjöld

Efnisgjöld nemenda vegna verkefna eru ætluð til að greiða helming kostnaðar við smíðaefni, hjálparefni og viðhald áhalda. Í kennsluáætlun kennara koma fram þau verkefni sem rúmast innan ramma efnisgjaldanna. Vinni nemandi verkefni umfram það, ber honum að greiða aukagjald sem nemur efniskostnaði. Þurfi að sækja úrlausnir til aðila utan skólans greiðir viðkomandi nemandi þann kostnað.

Skýring á skólagjöldum:

Innritunargjald færist beint í ríkissjóð sem ríkistekjur og er aldrei endurgreitt, þó að hætt sé við skólavist.

Efnis-, tækja- og skólagjald stendur undir hluta af því efni sem notað er í verklegum áföngum, ásamt pappír, tölvuaðgangi o.fl.

Efnisgjöld fást ekki endurgreidd, viku eftir að kennsla hefst.

Skólafélagsgjald er gjald til nemendafélags IH.

Óski nemendur eftir að segja sig úr skólafélaginu geta þeir sótt um endurgreiðslu í annari kennsluviku, nánar tilgreint á greiðsluseðli.

Nemendur sem vegna veikinda eða slysa, þurfa að hverfa frá námi, geta sótt sérstaklega um endurgreiðslu, þó eigi síðar en eftir fjórðu kennsluviku.



Eldra efni