
Nám í rafiðngreinum hefst með 4 anna sameiginlegu grunnnámi en að því loknu velja nemendur fagnám í rafeindavirkjun, rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun. Fagnámið skiptist í tvennt, annars vegar bóklegt og verklegt nám í skóla og hins vegar vinnustaðanám hjá iðnmeistara. Skólinn býður fagnám í Rafvirkjun. Heildarnámstími er að jafnaði 4 ár og þar af er samningsbundið vinnustaðanám hjá iðnmeistara 24-48 vikur eftir námsleiðum (meistaraleið eða skólaleið). Náminu lýkur með sveinsprófi sem veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Störf rafiðnaðarmanna eru fjölbreytt og mikil eftirspurn er eftir fólki með sérþekkingu á sviði rafiðna í atvinnulífinu. Sem dæmi má nefna raflagnir í nýbyggingar, uppsetningar og viðhald á fjarskipta- og tölvubúnaði, viðgerðir á heimilistækjum og umsjón með tölvukerfum.

