Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafi veitir nemendum ráðgjöf og stuðning í námi, við náms– og starfsval og vegna persónulegra mála. Innan skólans er hann trúnaðarmaður og málsvari nemenda og er bundinn trúnaði við skjólstæðinga sína.
Náms– og starfsráðgjafi veitir jafnframt foreldrum, kennurum og öðru samstarfsfólki ráðgjöf í málum einstakra nemenda.
Nemendur með sértæka námsörðugleika og nemendur sem stríða við einhvers konar fötlun og/eða tímabundna persónulega erfiðleika s.s. veikindi eða félagslega erfiðleika er sérstaklega bent á þjónustu náms- og starfsráðgjafa.
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er að veita m.a.
- Ráðgjöf og fræðslu í námi, s.s. tímastjórnun og námstækni.
- Ráðgjöf og fræðslu við náms– og starfsval, t.d. með áhugasviðsgreiningu, miðlun upplýsinga um möguleika og framboð á námi og störfum.
- Ráðgjöf og stuðning vegna persónulegra mála, s.s. vegna tímabundinna erfiðleika, veikinda og/eða áfalla.
- Ráðgjöf og stuðning við nemendur með námsörðugleika eins og ADHD, ADD, lestrarörðugleika og aðra skynjunarörðugleika.
Áhersla er lögð á að hjálpa nemendum að finna sínar eigin leiðir við úrlausn mála.





