Sérkennsla

Um stoð- og sérkennslu í Iðnskólanum í Hafnarfirði

Í ljósi mikillar þarfar fyrir stoðkennslu innan framhaldsskólans er nú boðið upp á aðstoð af ýmsu tagi við Iðnskólann í Hafnarfirði. Þjónustan er háð þeim möguleikum sem stundatafla býður upp á.

Sækja má um stoðkennslu á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á heimasíðu sérkennara, á skrifstofu eða hjá námsráðgjafa.

Eftirfarandi þáttum er sinnt:

-         Stoðkennslu nemenda með sértæka námsörðugleika í íslensku og stærðfræði.
-         Greiningu nemenda með dyslexíu.
-         Lestrarþjálfun. Starfræktir eru leshópar fyrir dyslexíunemendur.
-         Viðtöl og ráðgjöf við nemendur með námsörðugleika.

Foreldrar eru hvattir til að hafa samband við sérkennara, t.d. í viðtalstímum. Einnig má leggja inn nafn og símanúmer á skrifstofu og sérkennari hefur samband.

Umsókn um stoðkennslu



Eldra efni