Mikilvægt er að nemendur með námsörðugleika s.s. lestrarörðugleika (dyslexia), ADHD, ADD, skili inn greiningum til náms- og starfsráðgjafa strax við upphaf náms.
Þjónusta sem skólinn veitir nemendum með námsörðugleika er eftirfarandi:
Á kennslutíma
- Regluleg stuðningsviðtöl hjá náms- og starfsráðgjöfum skólans
- Stutt og hagnýt námskeið í ýmsum þáttum sem snúa að námi, t.d. tímastjórnun, glósugerð og lestrartækni.
- Aðstoð við heimanám.
Á próftíma – sérúrræði
- Lengri próftími, 30 mín.
- Stækkuð prófblöð, A3
- Lituð prófblöð
- Upplesin próf í bóklegum greinum
- Svör á prófi rituð á tölvu
- Ritari/lesari, eingöngu veitt þegar um alvarlega erfiðleika er að ræða
Nemendur sem skilað hafa inn greiningu geta sótt um sérúrræði í prófum. Nemendur þurfa að sækja um aðstoðina á hverri önn, á ákveðnum auglýstum tíma, hjá náms- og starfsráðgjöfum.





