Reglur varðandi fíkniefni

  1. Skólinn er tóbakslaus. Frá og með 1. september 2005 er nemendum og starfsfólki óheimilt að nota tóbak í húsnæði skólans og á skólalóð.
  2. Öll meðferð áfengis og annarra vímuvaldandi efna er bönnuð í húsnæði skólans og á lóð skólans. Sé nemandi uppvís að neyslu vímuefna innan skólans eða á lóð hans getur hann valið að leita sér aðstoðar sérfræðinga eða víkja úr skóla.
  3. Á skólaskemmtunum og ferðalögum í nafni skólans ber nemendum að sýna góða hegðun. Ósæmileg hegðun, svo sem ölvun, getur leitt til brottvísunar úr skóla og ber skólaráði að fjalla um slík mál.
  4. Öllum alvarlegri málum, s.s. sölu eða milligöngu um sölu áfengis og sölu eða dreifingu ólöglegra fíkniefna, er umsvifalaust vísað til lögreglu. Skólaráð ákveður hvort nemanda er vísað úr skóla á meðan rannsókn fer fram.


Eldra efni