Stefna Iðnskólans í Hafnarfirði í forvarnarmálum er fyrst og fremst að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri lífssýn nemenda og vinna gegn sjálfseyðandi hegðun. Við skólann er starfandi forvarnarteymi og fer forvarnarfulltrúi með verkstjórn þar. Verkefni forvarnateymis ná til allra forvarna innan skólans sem og þeirra uppákoma sem haldnar eru á vegum skólans, s.s. skólaböll, skemmtikvöld, tölvulan o.þ.h. Verkefnin spanna afar breytt svið s.s. tóbaksreykingar, áfengisneyslu, fíkniefnaneyslu og átraskanir svo eitthvað sé nefnt.
Hlutverk forvarnarfulltrúa Iðnskólans í Hafnarfirði
- Er í forsvari fyrir stefnumörkun og framkvæmd forvarna í skólanum.
- Hefur einn fastan viðtalstíma í viku fyrir nemendur, foreldra og starfsmenn.
- Tekur á móti ábendingum ef grunur er um vímuefnanotkun nemenda.
- Stuðlar að félagslífi innan skólans sem hefur heilbrigða lífshætti að leiðarljósi með því að:
1. Styðja jafningafræðslu innan skólans.
2. Vinna að fjölbreyttu félagslífi með nemendum.
3. Vera á skólaböllum sem gæsluliði.
- Starfar með forvarnarteymi, á sæti í nemendaverndarráði og áfallaráði skólans.
- Er í samstarfi við námsráðgjafa, nemendafélagið, bæjaryfirvöld, aðra forvarnarfulltrúa og fagaðila utan skólans eins og við á s.s. Fræðslumiðstöð í fíknivörnum, SÁÁ, Landspítalann o.fl.
- Aflar sér þekkingar og hugmynda hjá fagaðilum og með þátttöku á námskeiðum og ráðstefnum.





