Um safnið
Hlutverk og markmið
Skólasafnið er upplýsingamiðstöð fyrir nemendur, kennara og starfsfólk skólans. Starfsemi þess á að styðja nám, kennslu, félagslíf og þróunarstarf í skólanum. Safnið er búið bókum, tímaritum, gögnum á tölvutæku formi, myndböndum og öðrum nýsigögnum sem tengjast kennslugreinum skólans. Einnig er boðið upp á efni sem hvetur nemendur til stöðugrar þekkingarleitar í leik og starfi og bókmenntalesturs. Með því er stuðlað að heilbrigðu líferni og þroska.
Á skólasafninu fer fram öflun og úrvinnsla þekkingar. Þar er upplýsingum safnað saman, þær skipulagðar, metnar og notaðar. Vinnuaðstaða er á safninu þar sem nemendur geta búið sig undir kennslustundir, unnið að verkefnum og ritgerðum eða nýtt upplýsingakost safnsins á annan hátt. Einnig er aðstaða til hóp- og tölvuvinnu.

Á skólasafninu fá nemendur kennslu í upplýsingaöflun. Þeir fá þjálfun í sjálfstæðri leit upplýsinga eftir mismunandi leiðum og á margvíslegu formi; t.d. leit í bókasafnskerfi safnsins, handbókum, margmiðlunardiskum og gagnabönkum á Netinu. Kennt er hvaða aðferðum er best að beita við upplýsingaleit eftir því hvert verkefnið er. Kynntar eru helstu leitarvélar og vefskrár sem eru í boði á Netinu, bæði innlendar og erlendar. Nemendum er bent á mikilvægi þess að afmarka leitina og huga að áreiðanleika og gæðum upplýsinga. Með því er stuðlað að upplýsingalæsi nemenda.

Aðstaða
Bókasafn Iðnskólans í Hafnarfirði er á annarri hæð, innan við matsal nemenda. Lesaðstaða og tölvur eru inni á bókasafninu fyrir viðskiptavini safnsins, allar tengdar við prentara.
Safnið er opið mánudaga – fimmtudaga kl. 8:45 – 15:15 og föstudaga kl. 8:45 – 12:15
Safngögn
Safnkostur er að mestu byggður upp á bókum og tímaritum að viðbættu efni á öðru formi eftir því sem þurfa þykir. Bókaval og innkaup eru fyrst og fremst í höndum forstöðumanns skólasafns með ráðgjöf og tillögum frá bókavalsnefnd. Bæði nemendur og kennarar eru hvattir til að koma með tillögur um innkaup fyrir safnið.
Bókakostur og annað efni er flokkað eftir DDC (Dewey Decimal Classification) og skráð í Gegni.
Aðföng fyrir bókasafn Iðnskólans í Hafnarfirði miðast einkum við starfsemi skólans og þær námsgreinar sem þar eru kenndar.
Ábendingum um innkaup frá nemendum og kennurum er ávallt vel tekið!

Þjónusta
Viðskiptavinir safnsins eru fyrst og fremst nemendur og kennarar skólans. Útlán eru tölvuvædd og eru bækur lánaðar í 30 daga og myndbönd í tvo daga. Tímarit og annað efni er eingöngu til notkunar á safninu.
Á safninu er veitt öll sú upplýsingaþjónusta sem við verður komið og fólki bent á aðrar leiðir ef ekki er hægt að finna svör á staðnum. Kennurum er boðið að fylgjast með því sem nýjast er í þeirra fagi og þeim bent á áhugavert efni sem tengist þeirra kennslu. Einnig er kennurum boðið að láta taka frá bækur í tengslum við verkefnavinnu nemenda.
Öllum nýnemum er boðið á safnið í byrjun annar og þeim kynntir möguleikar safnsins.
Reglur
Reglur bókasafns Iðnskólans í Hafnarfirði eru í samræmi við reglur skólans almennt.





