Dewey
Bókum og öðru safnefni er raðað í hillur eftir flokkunarkerfi Deweys og er kerfið lykillinn að staðsetningu þeirra í hillu.
Kerfið er byggt á stigveldi og hefur 10 mismunandi aðalflokka eftir fræðigreinum sem síðan skiptast niður í nákvæmari undirflokka. Flokkunin segir til um efni og hvar bókin er staðsett í hillum safnsins.
Aðalflokkar Dewey-flokkunarkerfisins
000 Almennt efni, tölvufræði
100 Heimspeki, sálfræði
200 Trúarbrögð
300 Félagsvísindi
400 Tungumál
500 Raunvísindi
600 Tækni (hagnýt vísindi), iðnaður
700 Listir, skemmtanir, íþróttir
800 Bókmenntir og stílfræði
900 Landafræði, ævisögur og sagnfræði
Hver yfirflokkur skiptist niður í nákvæmari undirflokka:
800 Bókmenntir og stílfræði
810 Íslenskar bókmenntir
811 Íslensk ljóð
Bókum safnsins er raðað í númeraröð eftir flokkstölu. Í bókasafnskerfinu Gegni er hægt að leita að bók og sjá hvar hún er staðsett í hillu. Flokkstalan (númerið) vísar á hilluna og raðorð (oftast þrír fyrstu stafirnir í nafni höfundar) segir til um hvar bókin er í stafrófsröð innan flokksins, t.d. væri ljóðabók eftir Þórarinn Eldjárn í 811 Þór.
Kjölur bókarinnar er merktur með þessari staðsetningu og hillur bókasafnsins eru líka merktar með þessum flokkum.
Athugið að íslenskum höfundum er raðað eftir skírnarnafni en erlendum höfundum eftir ættarnafni.

