Starfsmannastefna

Starfsmannastefna

Í starfsmannastefnu skólans er lögð áhersla á fagmennsku, starfsánægju og jafnrétti. Starfsfólk er hvatt til þess að afla sér þekkingar, sækja námskeið og mennta sig á þann hátt sem best má að gagni koma og gefur þeim kost á að vaxa og dafna í starfi. Leiðbeinendur eru sérstaklega hvattir til þess að afla sér kennsluréttinda. Kennurum er veitt svigrúm til að sinna þróunarstarfi og námsefnisgerð. Atvinnuöryggi starfsmanna er tryggt eins og kostur er. Gott samstarf er við yfirvöld menntamála og stéttarfélög. Haft er samráð við trúnaðarmenn og kennarafélag skólans um ákvarðanir sem snerta laun, vinnuaðstöðu, vinnutíma og önnur kjaramál.

Áhersla er lögð á að tekið sé vel á móti nýjum starfsmönnum. Þeir fá almenna fræðslu um starfsemi skólans sem og þann hluta sem snýr að starfi þeirra svo að þeir geti sem fyrst gert sér grein fyrir hlutverki sínu, ábyrgð og tengslum við aðra starfsmenn. Deildarstjórar taka á móti kennurum í sínum deildum og fræða þá um viðtekna starfshætti. Lögð er áhersla á að allir starfsmenn leggi sitt af mörkum til að efla góðan starfsanda í skólanum og sýni hver öðrum gagnkvæma virðingu, sanngirni og hjálpsemi.

Reynt er að sinna tafarlaust þeim vandamálum sem koma upp hjá einstökum starfsmönnum eða milli starfsmanna án þess þó að aðhafast í fljótræði. Starfsmenn skulu fá tækifæri til að tala máli sínu og gefa skýringar.

Báðum kynjum er gert jafn hátt undir höfði, þannig að völd, ábyrgð, réttindi og skyldur dreifast sem jafnast á milli fólks. Einnig er gefinn kostur á sveigjanlegum vinnutíma. Allar stöður sem losna við skólann eru auglýstar eins og lög gera ráð fyrir. Hæfni umsækjenda er metin á faglegum forsendum með hliðsjón af menntun og umsögnum fyrri vinnuveitanda. Skólinn kappkostar að ráða þann sem hæfastur er talinn til starfsins hverju sinni óháð aldri, kynþætti, trúarbrögðum og stjórnmálaskoðunum.



Fréttir

Eldra efni