Starfslýsingar

Starfslýsingar fyrir stjórn og starfsfólk Iðnskólans í Hafnarfirði

Skólameistari

•Ber ábyrgð á starfsemi skólans, innritun nemenda, menntunar- og uppeldishlutverki skólans, þróunarstarfi innan hans, eigum, fjárreiðum og öllum rekstri.
•Hefur yfirumsjón með áætlanagerð um kennslu, námsframboð og aðra starfsemi skólans, rekstur og eignakaup.
•Ber ábyrgð á því að samþykktum áætlunum sé fylgt.
•Sér um að lögum, reglugerðum og námskrá sé framfylgt.
•Sér um að auglýsa öll störf innan skólans og ræður kennara í samráði við skólanefnd og aðra starfsmenn eftir því sem gildandi lög og reglugerðir kveða á um og skiptir með þeim verkum.
•Hefur yfirumsjón með starfi kennara, nemenda og annarra starfsmanna skólans og fylgist með því að þeir ræki skyldur sínar og njóti þeirra réttinda sem þeim ber.
•Sér um tengsl skólans við þá er láta sig störf hans varða t.d. aðstandendur nemenda, yfirvöld og aðila á öðrum sviðum atvinnulífsins.

Aðstoðarskólameistari

•Vinnur með skólameistara við daglega stjórnun skólans og rekstur og er staðgengill í fjarveru hans.
•Hefur umsjón með innritun nemenda, stundatöflu- og próftöflugerð og mat á námi frá öðrum skólum.
•Sér um að nemendur uppfylli skilyrði námskrár til að útskrifast, í samráði við áfangastjóra.

Fjármálastjóri

•Sér um bókhald, greiðir reikninga og annast aðrar fjárreiður skólans í umboði skólameistara.
•Fylgist með fjárhagsstöðu skólans, miðlar upplýsingum um hana til þeirra sem málið varðar.
•Hefur umsjón með rekstri skrifstofu og innkaupum.

Áfangastjóri

•Hefur umsjón með rekstri áfangakerfis við skólann.
•Sér um innritun nemenda og skráningu upplýsinga um nemendur er innritast í skólann, færslu námsferilsskrár og miðlun upplýsinga um námsstöðu nemenda.
•Hefur umsjón með fjarvistaskráningu.
•Hefur umsjón með námsvali nemenda í samráði við aðstoðarskólameistara, námsráðgjafa og umsjónarkennara.
•Hefur umsjón með gerð stundatöflu, próftöflu, prófstjórn og úrvinnslu einkunna.

Deildarstjóri

•Hefur umsjón með gerð kennsluáætlana, kennslu, vali á námsefni, námsmati og samvinnu kennara.
•Sér um undirbúning og skipulag skólastarfsins í deildinni fyrir hverja önn.
•Veitir upplýsingar og ráðgjöf um nám og námsleiðir innan deildarinnar.
•Veitir upplýsingar um kennsluefni og kennsluhætti og aðstoðar nemendur varðandi mat á gögnum og nám í greinum sem eru undir þeirra stjórn.
•Gerir áætlun um störf deildarinnar ásamt kennurum og skrifar skýrslu um starfsemina í lok skólaárs.
•Heldur fundi með kennurum um mál viðkomandi greina innan deildarinnar.
•Tekur á móti nýjum kennurum í sinni deild og fræðir þá um viðtekna starfshætti.
•Hefur samstarf, undir stjórn aðstoðarskólameistara, við kennara um námsefni og kennsluhætti og tillögur til ráðuneytis um breytingar á námskrá.
•Hefur umsjón með kennslugögnum og tækjum ásamt efniskaupum og fylgist með umgengni í deildinni.

Umsjónarkennari

•Hefur umsjón með ákveðnum nemendahópi.
•Hefur eftirlit með skólasókn og samvinnu við heimili ólögráða nemenda.
•Kemur ábendingum frá kennurum um námsvanda á framfæri við námsráðgjafa.
•Er nemendum til ráðuneytis um mál sem tengjast skólavist þeirra, aðstoðar nemendur við námsval og vinnur námsáætlanir með þeim.
•Er talsmaður nemenda sinna gagnvart skólayfirvöldum og öðrum kennurum.
•Leiðbeinir nemendum um vinnubrögð í námi og leitast við að virkja þá til þátttöku og samábyrgðar í mótun þroskavænlegs og skapandi skólastarfs.
•Miðlar upplýsingum frá stjórnendum skóla til umsjónarnemenda sinna.
Kennarar skólans starfa skv. siðareglum kennara frá árinu 2002. Siðareglur eru settar til að efla fagmennsku kennara, styrkja fagvitund þeirra og eru þeim til leiðbeiningar í starfi, sjá nánar á vef Kennarasambands Íslands: www.ki.is

Náms- og starfsráðgjafi

•Veitir ráðgjöf í námi, s.s. skipulagningu tíma, áætlanagerð og námstækni.
•Veitir ráðgjöf við náms- og starfsval, s.s. áhugasviðsgreiningu, miðlun upplýsinga um möguleika og framboð á námi og störfum.
•Veitir ráðgjöf og stuðning vegna persónulegra mála, s.s. vegna tímabundinna erfiðleika og/eða áfalla.
•Starfar með ýmsum nefndum, ráðum og teymum innan skólans og er í samstarfi við aðra fagaðila og stofnanir eftir því sem við á.
•Sinnir verkefnum er varða uppbyggingu og þróun þjónustunnar t.d. með þátttöku á námskeiðum og ráðstefnum.

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

•Sér um rekstur bókasafns skólans.
•Annast bókakaup, flokkun, skráningu, frágang og útlán á gögnum safnsins.
•Sér um safnkynningar í samráði við kennara og aðstoðar nemendur og kennara við verkefnavinnu, heimildaleitir og gagnaöflun.

Vefstjóri

•Sér um ritstjórn, uppbyggingu og viðhald á vef skólans.
•Leiðbeinir kennurum um notkun á vef skólans, innsetningu efnis o.fl.
•Ber ábyrgð á vef NFIH ásamt vefstjóra nemenda.

Kerfisstjóri

•Sér um tölvu- og tækjakost skólans.
•Aðstoðar notendur kerfisins og veitir aðgang að tölvukerfinu.
•Er ráðgefandi um tölvu- og tækjakaup fyrir skólann.

Skólafulltrúi

•Annast símavörslu, veitir almennar upplýsingar, tekur við skilaboðum, tilkynningum um veikindi, gefur út vottorð auk annarra tilfallandi starfa.
Félagslífsfulltrúi

•Er tengiliður nemendaráðs við skólastjórn og yfirvöld.
•Er ráðgefandi í sambandi við skemmtanir, ferðir og aðrar uppákomur á vegum nemenda.
•Sér um að fá nemendur til starfa í nemendaráði, aðstoðar við kosningar, fundarsköp o.fl.
•Skólameistari skipar félagslífsfulltrúa úr röðum starfsfólks.

Forvarnarfulltrúi

•Er í forsvari fyrir stefnumörkun og framkvæmd forvarna í skólanum.
•Tekur á móti ábendingum ef grunur er um vímuefnanotkun nemenda.
•Stuðlar að félagslífi innan skólans sem hefur heilbrigða lífshætti að leiðarljósi.
•Starfar með forvarnarteymi, á sæti í nemendaverndarráði og áfallaráði skólans.
•Er í samstarfi við námsráðgjafa, nemendafélagið, bæjaryfirvöld, aðra forvarnarfulltrúa og fagaðila utan skólans eins og við á s.s. Fræðslumiðstöð í fíknivörnum, SÁÁ, Landspítalann o.fl.
•Skólameistari skipar forvarnarfulltrúa úr röðum starfsfólks.

Jafnréttisfulltrúi

•Hefur eftirlit með því að jafnréttisáætlun sé fylgt og tekur við ábendingum um það sem miður kann að fara í jafnréttismálum.
•Skólameistari skipar jafnréttisfulltrúa úr röðum starfsfólks.
Trúnaðarmenn

•Eru umboðsmenn kennara, náms- og starfsráðgjafa og fulltrúar stéttarfélagsins.
•Tala máli kennara, náms- og starfsráðgjafa og eru aðaltengiliðir við stjórn og stéttarfélag.
•Fara með lögbundið og kjarasamningsbundið hlutverk á vinnustað.
•Trúnaðarmenn eru valdir á almennum kennarafundi

Öryggistrúnaðarmenn

•Fylgjast með því að hollustuhættir, aðbúnaður og öryggi séu í samræmi við vinnuverndarlögin.
•Sitja í öryggisnefnd skólans sem skipuleggur aðgerðir og fræðslu varðandi vinnuvernd.
•Eru kosnir af starfsfólki á almennum kennarafundi, til tveggja ára í senn.

Húsvörður

•Hefur umsjón með húsnæði skólans og öðrum eigum hans í umboði skólameistara.
•Hefur eftirlit af ræstingu skólans og öryggisvörslu, sem og mörgu fleiru.
•Nemendum er skylt að hlíta fyrirmælum hans varðandi alla umgengni.

Skólalæknir

Allir nemendur fylla út heilsufarsskrá sem er send skólalækni og er hún meðhöndluð sem trúnaðarmál.
Nemendur sem eiga lögheimili utan skólasvæðisins geta snúið sér til skólalæknis þurfi þeir á þjónustu læknis að halda.

Trúnaðarlæknir

Samkvæmt almennum reglum um hlutverk trúnaðarlæknis veitir hann stjórnendum og starfsfólki ráðgjöf um læknisfræðileg málefni sem tengjast vinnustað. Meðal viðfangsefna sem trúnaðarlæknir hefur umsjón með er heilbrigðiseftirlit og ráðgjöf fyrir starfsfólk um þætti sem snúa að starfi þess. Trúnaðarlæknir gegnir ekki hlutverki heimilislæknis og gefur heldur ekki út vottorð fyrir starfsmenn vegna fjarvista og veikinda. Trúnaðarlæknir getur veitt ráðgjöf ef um er að ræða endurtekinn eða langvarandi heilsufarsvanda hjá hópi starfsmanna eða einstaklingum. Þegar leitað er til trúnaðarlæknis vegna viðkvæmra mála tengdum starfi er litið á þau samskipti sem trúnaðarmál.

Trúnaðarlæknir IH er Jón Bjarni Þorsteinsson. Símatími: 11 – 11.30 s: 550-2664



Fréttir

Eldra efni