Sjálfsmat
Við skólann fer fram sjálfsmat samkvæmt framhaldsskólalögum. Ýmsir þættir skólastarfsins eru metnir með stöðluðum aðferðum og er markmiðið að gera skólann að betri og skilvirkari stofnun, ábyrgan fyrir eigin umbótum og meðvitaðan um styrkleika sína og veikleika. Meðal þess sem metið er eru kennsluaðferðir, aðstaða starfsfólks og nemenda, stjórnsýsla skólans, tengsl atvinnulífs og skóla og brottfall úr námi. Um matið sér stýrihópur sem valinn er til eins árs í senn. Hann skipa fulltrúar kennara og stjórnenda. Hlutverk stýrihópsins er að skipuleggja og sjá um framkvæmd sjálfsmatsins. Útbúin eru spurningablöð fyrir hverja könnun sem fyllt eru út af þátttakendum. Niðurstöður eru teknar saman og unnið út frá þeim. Umbætur á einstaka atriðum eru metnar með endurteknum könnunum.





