Nefndir og ráð

Nefndir og ráð
Skólanefnd er skipuð af menntamálaráðherra til fjögurra ára í senn. Í skólanefnd sitja fimm fulltrúar: þrír án tilnefningar og eru þeir búsettir í Hafnarfirði og tveir fulltrúar tilnefndir af bæjarstjórn. Varamenn eru valdir með sama hætti. Nefndin velur sér formann til eins árs í senn. Skólameistari kallar skólanefnd saman til fyrsta fundar og stýrir kjöri formanns. Áheyrnarfulltrúar eru tveir með málfrelsi og tillögurétt, tilnefndir til eins árs í senn, annar af kennurum skólans en hinn af nemendafélagi skólans. Skólameistari skal leita eftir tilnefningum áheyrnarfulltrúa. Skólameistari situr fundi skólanefndar með málfrelsi og tillögurétt og er framkvæmdastjóri hennar. Skólameistari undirbýr fundi skólanefndar í samráði við formann.
Hlutverk skólanefndar er að:
• marka áherslur í starfi skólans og stuðla að sem bestum tengslum hans við atvinnu- og menningarlíf.
• ákveða ásamt skólameistara námsframboð skólans.
• samþykkja skólanámskrá skólans.
• gera árlega starfs- og fjárhagsáætlun fyrir skólann.
• setja reglur um notkun skólahúsnæðis utan skólatíma.
• gera tillögur til menntamálaráðherra um ráðningu skólameistara.
• vera skólameistara til samráðs um starfsmannaráðningar við skólann.

Skólanefnd skipa: Björn Ingi Sveinsson, Ársæll Guðmundsson, Sveinn Jóhannsson, Jóhanna Axelsdóttir, Hjalti Jóhannsson og Sigurður Þorleifsson. Áheyrnarfullrúi kennara: Ragnhildur Guðjónsdóttir Áheyrnarfullrúi nemenda: Elín Björg Guðmundsdóttir Áheyrnarfullrúi foreldra hefur ekki verið tilnefndur Framkvæmdastjóri skólanefndar: Ársæll Guðmundsson
________________________________________
Skólaráð
Skólaráð starfar við skólann og er það kosið í upphafi hvers skólaárs. Í ráðinu sitja tveir fulltrúar kennara, kjörnir á fyrsta almenna kennarafundi skólaársins, tveir fulltrúar nemendaráðs auk aðstoðarskólameistara og áfangastjóra sitja í skólaráði. Skólameistari er oddviti skólaráðs og stýrir fundum þess.
Skólaráð:
• er skólameistara til aðstoðar og ráðgjafar um stjórn skólans,
• fjallar um starfsáætlun skólans og framkvæmd hennar,
• fjallar um skólareglur, umgengnishætti í skólanum, vinnu- og félagsaðstöðu nemenda,
• veitir umsögn um erindi frá skólanefnd, almennum kennarafundi, nemendaráði, einstaklingum, skólameistara og menntamálaráðuneytinu sé þess óskað,
• fjallar um mál sem varða einstaka nemendur og er farið með þau sem trúnaðarmál.

Skólaráð getur vísað erindum sem það hefur fjallað um, ásamt umsögnum, til skólanefndar, kennarafundar eða nemendaráðs.
Skólaráð skipa: Gunnar Már Antonsson, Sólveig Sveinbjörnsdóttir, Ársæll Guðmundsson, Sveinn Jóhansson, Þór Pálsson, og nemendurnir Elín Björg Guðmundsdóttir og María Mekkín Baldursdóttir
________________________________________

Nemendaráð
Í byrjun haustannar eru valdir fulltrúar í nemendaráð. Hver deild velur tvo fulltrúa, aðal- og varafulltrúa. Fulltrúarnir velja sér stjórn sem skiptir með sér verkum. Starf nemendaráðs er m.a. að:
• velja einn fulltrúa í skólanefnd til eins árs, valinn á vorönn.
• velja tvo fulltrúa í skólaráð til eins árs, valdir í upphafi haustannar.
• stuðla að fjölbreyttu félagslífi nemenda m.a. með stofnun ýmissa klúbba og áhugahópa.
• hafa samráð og samvinnu við aðra skóla um hagsmunamál nemenda.
• velja fulltrúa til setu í Sambandi sérskólanema og hjá Iðnnemasambandinu.
Úlfar Harri Elíasson, gæðastjóri er nemendum til aðstoðar í félagsstarfinu.

Formaður nemendaráðs – Elín Björg Guðmundsdóttir
________________________________________

Kennarafélag
Kennarafélagið er félagsdeild innan Kennarasambands Íslands (KÍ). Félagsdeildirnar setja sér lög og kjósa sér stjórnir. Þær koma að kjara- og réttindamálum félagsmanna á vinnustað, tilnefna fulltrúa sína í samstarfsnefnd vinnustaðar sem gerir stofnanasamninga fyrir hönd félagsmanna, samkvæmt ákvæðum kjarasamnings Félags Framhaldsskólakennara (FF). Þær vinna að skólamálum og innra starfi og taka þátt í stefnumörkun FF og KÍ um þessi sömu mál. Félagsdeildirnar tilnefna líka fulltrúa sína á aðalfundi og fulltrúafundi FF og á þing KÍ, eftir atvikum.

Stjórn kennarafélagsins skipa: Björgúlfur Þorsteinsson, Sigurlaug Ingvarsdóttir, Guðný Ásta Snorradóttir og Einar Sigurðsson
Trúnaðarmenn: Guðni Guðjónsson og Helga Jóhannesdóttir
________________________________________

Starfsmannafélag
Allir starfsmenn geta verið félagsmenn í starfsmannafélaginu. Hlutverk þess er að efla og bæta félagsanda meðal starfsmanna. Á hverju hausti eru skipaðir fimm aðilar í stjórn félagsins sem sjá um að skipuleggja ferðir og skemmtanir á vegum félagsins.

Guðný Ásta Snorradóttir, Dögg Jónsdóttir, Guðni Guðjónsson, Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Helgi Pálsson
________________________________________

Stýrihópur um heilsueflandi framhaldsskóla
Sér umverkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli í samstarfi við Lýðheilsustöð/Landlæknisembættið.  Verkefnið sem um er að ræða býður upp á heildræna stefnu í forvarna- og heilsueflingarmálum sem  gerir framhaldsskólum kleift að marka sér skýra stefnu, skerpa á aðgerðaráætlunum og forvörnum og jafnframt mynda á hagnýtan hátt skýran ramma utan um þennan almenna málaflokk.

Vaka Rögnvaldsdóttir, Sveinn Jóhannsson, Ingibjörg Þorsteinsdóttir og nemendurnir Steini Sævar Sævarsson og Egill Karel Logason
________________________________________

Áfallaráð
Áfallaráð fer með verkstjórn þegar válegir atburðir gerast sem snerta nemendur og starfsmenn skólans. Áföll og sorg geta verið af ýmsum toga s.s. dauði, langvarandi sjúkdómar, vímuefnavandi, ofbeldi o.fl.

Áfallaráð skipa:
Ársæll Guðmundsson, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Helga Helena Sturlaugsdóttir og Inga Jóna Þórsdóttir
________________________________________

Stoðteymi
Stoðteymi er faglegt teymi sem starfar innan almennrar námsbrautar. Þar eiga sæti deildarstjóri almenns náms, náms- og starfsráðgjafi og sérkennarar. Hlutverk teymisins er að halda utan um og skipuleggja þann námsstuðning sem nemendum brautarinnar stendur til boða sem og að standa vörð um velferð nemenda. Teymið fundar tvisvar í mánuði.

Stoðteymi skipa: Erla Skaftadóttir, Ingibjörg Jóna Þórsdóttir og Guðný Ásta Snorradóttir
________________________________________

Forvarnarteymi
Formaður forvarnarteymis er forvarnarfulltrúi skólans. Hlutverk forvarnarteymis er að gera forvarnir að hluta af daglegu starfi skólans. Það hefur forgöngu um að útbúa skriflega stefnu í forvörnum sem er öllum aðgengileg. Það stendur fyrir fræðsluerindum og námskeiðum fyrir nemendur, forráðamenn og starfsfólk. Einnig er því ætlað að koma á fót upplýsingabanka um forvarnir og meðferðarúrræði, skipuleggja inngrip og framfylgja því ef íhlutunar er þörf.

Forvarnarteymi skipa: Úlfar Harri Elíasson og Vaka Rögnvaldsdóttir
________________________________________

Samstarfsnefnd
Samstarfsnefndir tóku til starfa í öllum framhaldsskólum sumarið 2001, samkvæmt sérstöku umboði frá fjármálaráðherra. Ákvæði um samstarfsnefndir í framhaldsskólum eru í 11. kafla kjarasamnings Félags framhaldsskólakennara. Samningsaðilar tilnefna hvor um sig tvo fulltrúa og jafnmarga til vara. Hlutverk nefndarinnar er m.a. að fjalla um forsendur starfaflokkunar og röðunar starfa í launaflokka.
Samstarfsnefnd: Henry Þór Gränz, Guðmundur Borgþórsson og Vaka Rögnvaldsdóttir
________________________________________

Sjálfsmatsnefnd
Við Iðnskólann í Hafnarfirði fer fram sjálfsmat samkvæmt 23. grein framhaldskólalaga nr. 80 frá 1996. Ýmsir þættir skólastarfsins eru metnir með stöðluðum aðferðum og er markmiðið að gera skólann að betri og skilvirkari stofnun, ábyrgan fyrir eigin umbótum og meðvitaðan um styrkleika sinn og veikleika. Stýrihópur sem sér um sjálfsmatið er valinn er til eins árs í senn. Stýrihópinn skipa fulltrúar kennara og stjórnenda. Hlutverk stýrihópsins er að skipuleggja og sjá um framkvæmd sjálfsmatsins.

Úlfar Harri Elíasson gæðastjóri ber ábyrgð á sjálfsmati
________________________________________

Öryggisnefnd
Öryggistrúnaðarmenn eru kosnir af starfsfólki, til tveggja ára í senn. Þeir fylgjast með því að hollustuhættir, aðbúnaður og öryggi sé í samræmi við vinnuverndarlögin. Öryggistrúnaðarmenn sitja í öryggisnefnd skólans. Öryggisnefnd skipuleggur aðgerðir og fræðslu varðandi vinnuvernd.

Öryggistrúnaðarmenn eru: Friðbjörn R. Georgsson, Guðmundur Helgi Helgason, Ársæll Guðmundsson og Ingibjörg Þorsteinsdóttir
________________________________________

Undirbúningsnefndir viðburða
Þemadagar
Deildarstjórar allra deilda
Opið hús
Sveinn, Björgúlfur og Henrý
Vorsýning
Helga Guðrún, Sólveig, Guðlaugur, Sigurlaug, Einar S., Skarphéðinn, Sæmundur og Þórhallur
Íslandsmót iðngreina
________________________________________

Erlent samstarf
Samskipti við erlenda skóla er fastur liður í starfsemi skólans og mikið lagt upp úr því að taka þátt í bæði norrænum og evrópskum samstarfsverkefnum. Nemendur og kennarar úr flestum deildum skólans fara reglulega utan og taka á móti gestum hér heima í tengslum við samvinnuverkefni af ýmsum toga.

Umsjón með erlendu samstarfi:
Þór Pálsson
________________________________________

Foreldraráð
________________________________________

Framtíðarskipan upplýsingatæknimála:
Garðar Þór Ingvarsson, Sigríður Sturlaugsdóttir, Gestur Guðmundsson og Ársæll Guðmundsson
________________________________________

Heimasíðuhópur:
Garðar Þór Ingvarsson, Guðný Kristín Bjarnadóttir og Sólveig Sveinbjörnsdóttir
________________________________________

 



Fréttir

Eldra efni