Námskjár

Námskjár er veflægt kennsluumhverfi í eigu fyrirtækisins Námskjár ehf.

Námskjárinn er þróaður af Nepal ehf. í Borgarnesi og hefur Nepal í samvinnu við frumherja notkunar Námskjás unnið að þróun  og endurbótum síðastliðin ár og hafa notendur átt stóran þátt í þeim breytingum og þeirri aðlögun sem átt hefur sér stað. Þeir skólar sem teljast til frumherja eru Viðskiptaháskólinn Bifröst, Landbúnaðarháskóli Íslands og Fjöltækniskólinn.

Iðnskólinn í Hafnarfirði byrjaði að nota Námskjáinn í byrjun árs 2006 og er stefnan að nemendur og kennarar nái smám saman að færa sér þá möguleika í nyt sem Námsjárinn hefur upp á að bjóða.

Nemendur sem eru í utanskóla- og fjarnámi hafa mikil not fyrir tækni eins og Námskjárinn hefur upp á að bjóða; tækni eins og t.d. að núna getur nemandi úti á landsbyggðinni sótt til sín þau verkefni sem hann á að skila til kennara, nemandinn getur sent verkefnin til kennara og kennarinn getur sent nemendum sínum svör og hvað megi betur fara.

Núna er ekkert annað en að vinda sér beint að efninu og kynna sér þá möguleika sem Námskjárinn hefur upp á að bjóða.

Innskráning á Námskjá:

https://secure.skoli.is/

Leiðbeiningar um notkun fyrir nemendur:

Leiðbeiningar



Eldra efni