Skólinn
Iðnskólinn í Hafnarfirði er framsækinn skóli í stöðugum vexti. Fjöldi nemenda er nú 630 og starfsmenn eru 66.
Aðsókn hefur verið góð í hefðbundnar iðngreinar og eru um tveir þriðju hlutar nemenda í iðn- og starfsnámi. Um einn fjórði hluti nemenda er í listnámi og u.þ.b. einn áttundi hluti nemenda í almennu námi.
Skólinn byggir á gömlum grunni hefðbundins iðnnáms en hefur einnig haslað sér völl sem góður listnámsskóli.
Nemendur geta sótt um á Menntagátt.is
Skrifstofan er opin frá kl.8:30-16:00 nema föstudaga frá kl. 8:30-14:00.
Skólinn starfar eftir lögum um framhaldsskóla og aðalnámskrá framhaldsskóla .
Markmið
Meginmarkmið náms við skólann er þríþætt:
•Að veita undirbúning til ákveðinna starfa í atvinnulífinu.
•Að veita hverjum og einum menntun sem nýtist í daglegu lífi og tómstundum.
•Að veita undirbúning til áframhaldandi náms í sérskólum eða háskólum.
Við ákvörðun á námsframboði og skipulagningu kennslu er leitast við að skapa skilyrði til að þessum markmiðum verði náð.
Sérstaða
Sérstaða skólans er að hann hefur ávallt verið fámennur og hafa því nemendur fengið einstaklingsbundna og persónulega þjónustu, einkum í verknámsdeildum skólans. Sérstaða skólans er einnig að koma fram með nýjungar í námsframboði, t.d. nám í hönnun og útstillingum ásamt námskeiðahaldi í trefjaplasti og tölvuteikningu. Skólinn hefur skapað sér sérstöðu með því að vera með besta námsframboðið í greinum sem byggja á sköpun og samvirkni hugar og handa. Við verknámsdeildir skólans hefur verið lögð áhersla á að ráða kennara með mikla reynslu úr atvinnulífinu.





