Nemendaráð vorönn 2011
Elías Viljar, formaður NFIH
Nánari upplýsingar: S. eða eliasviljar(hjá)hotmail.com
Val í nemendaráð
Í byrjun haustannar eru valdir fulltrúar í nemendaráð. Hver deild velur tvo fulltrúa, aðal- og varafulltrúa. Fulltrúarnir velja sér stjórn sem skiptir með sér verkum. Starf nemendaráðs er m.a. að:
- velja einn fulltrúa í skólanefnd til eins árs, valinn á vorönn
- velja tvo fulltrúa í skólaráð til eins árs, valdir í upphafi haustannar,
- stuðla að fjölbreyttu félagslífi nemenda m.a. með því að stofna áhugahópa í t.d. skák, borðtennis, bridge, knattspyrnu, skíðum og fl. svo sem að standa fyrir skemmtunum og rekstri “snarlsölu” og jafnvel bóksölu.
- hafa samráð/samvinnu við aðra skóla um hagsmunamál nemenda,
- velja fulltrúa í Samband sérskólanema og Iðnnemasambandið
Umsjónarkennari félagsstarfs er nemendum til aðstoðar í félagsstarfinu.
ALLAR FJÁRHAGSSKULDBINDINGAR SEM NEMENDARÁÐ GERIR Í NAFNI SKÓLANS SKULU SAMÞYKKJAST FYRIRFRAM AF FJÁRMÁLASTJÓRA, SKÓLAMEISTARA EÐA UMSJÓNARKENNARA FÉLAGSSTARFS.





