Mennta- og menningarmálaráðherra Katrín Jakobsdóttir heimsækir Iðnskólann.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra kom ásamt fylgdarliði í heimsókn í Iðnskólann mánudaginn 5. mars. Ráðherrann skoðaði skólann og ræddi við kennara og nemendur þar sem þeir voru að störfum. Ráðherra opnaði einnig formlega sýningu skólans “9 stoðir Iðnskólans” í Ikea á sama tíma. Skólameistari færði við sama tækifæri IKEA skál að gjöf sem þakklætisvott fyrir samstarfið á árinu 2011.















