‘
Fjöldi fólks mætti í nýja stöðvarhúsið til þess að vera við gangsetningu virkjunarinnar. Eftir gangsetningu og glæsilega flugeldasýningu voru samningar undirritaðir og gestum boðið að þyggja veitingar.
Myndir frá athöfninni má sjá hér: http://www.idnskolinn.is/reykdal/opnun/
Frá skólameistara:
Um leið og ég þakka öllum bæði nemendum og kennurum fyrir aðstoð við endurbyggingu Reykdalsvirkjunar sem nú er á lokastigi og komin í gang , vil ég benda á vefveitu Hafnarfjarðar á http://www.hafnarfjordur.is þar sem er stutt viðtal við mig og fleiri undir fréttinni „Reykdalsvirkjun á lokaspretti", sjá einnig „Reykdalsvirkjun skemmd". Þetta er viðtal sem nemendur af fjölmiðlabraut Flensborgar tóku. Það gæti e.t.v. verið gaman að sýna þetta í lífsleiknitímum.
Nú mun væntanlega verða gengið frá samningi við skólann á næstu dögum um rekstur virkjunarinnar.
Með bestu kveðju og þökk.
Jóhannes
Endurbygging Reykdalsvirkjunar er nú á lokastigi og var hún gangsett við hátíðlega athöfn föstudaginn 18. október
‘





