Bókasafn IH aðili að Gegni

April 15, 2004
By

Gegnir, samskrá íslenskra bókasafna hefur nú verið formlega tekinn í notkun á bókasafni Iðnskólans í Hafnarfirði. Markmið kerfisins er að tryggja landsmönnum
aðgang að bókfræðilegum upplýsingum sem nýtast í námi, starfi og/eða leik.

Kerfið byggir á einni sameiginlegri skrá sem notendur leita í á Internetinu.

Ef farið er inn á Gegnir.is má fletta upp í megninu af þeim safnkosti sem bókasöfn landins hafa að bjóða.
Til þess að sjá hvort að bók er til á bókasafni IH er best að byrja á að fara í ítarleit og slá þar inn höfund, titil eða efni í viðeigandi reiti. Áður en smellt er á leita er hægt að velja safnahóp sem er framhaldsskólasöfn og þar til hægri er bókasafn IH valið og síðan smellt á leitarhnappinn.

Einnig geta nú lánþegar fylgst með stöðu sinna útlána beint á vef Gegnis með því að skrá sig inn á vefinn. Notendanafn og lykilorð fást á bókasafninu.

Allar nánari upplýsingar eru fúslega veittar á bókasafninu eða í tölvupósti nanna.lind@idnskolinn.is

 

Gegnir, samskrá íslenskra bókasafna hefur nú verið tekinn í notkun á bókasafni IH




Eldra efni