Fótboltamót Iðnskólans í Hafnarfirði vorið 2012 fór fram í Risanum í Kaplakrika þann 21. febrúar. Hafist var handa (og fóta) eldsnemma um morgun í kröftugum gaddi. Hér má sjá á mynd sigurvegarana sem unnu alla sína leiki og fengu tólf stig. Þess má geta að í fyrsta skipti í tíu ár sendu kennarar frækið lið til keppni. Því liði gekk mjög vel enda skipað úrvals leikmönnum, Þór, Dögg, Skúla og Harra. Einnig var liðið með argentískan lánsmann, Padre Gabriel, sem er sagður eitthvað skyldur sparkljóninu Messi. Þá nutu kennarar liðsinnis hins knáa rappara Davíðs Blessing. Kennararnir unnu tvo leiki,...
Nánar »







