Nám í málmiðngreinum hefst með 4 anna sameiginlegu grunnnámi en að því loknu velja nemendur fagnám í rennismíði, vélvirkjun, blikksmíði eða stálsmíði.
Grunndeild bíliðna
Grunnnám bíliðna er 2 anna nám og að því loknu geta nemendur valið um að fara í bifreiðasmíði, bifvélavirkjun eða bílamálun.
Fagnám málmiðna
Fagnámið skiptist í tvennt, annars vegar bóklegt og verklegt nám í skóla og hins vegar vinnustaðanám hjá iðnmeistara. Skólinn býður fagnám í rennismíði , vélvirkjun og stálsmíði. Nemendur geta lokið því á tvemur önnum. Heildarnámstími er að jafnaði 4 ár og þar af er samningsbundið vinnustaðanám hjá iðnmeistara 60 vikur. Ætlast er til að 6 mánuðir séu teknir eftir að námi í skóla lýkur. Náminu lýkur með sveinsprófi sem veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

