Beint á leiðarkerfi vefsins

30.3.2007

Sveinspróf

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka fæst:

Matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn 14.-16. maí.

Prentsmíð, prentun og bókbandi, 21.-26. maí.

Bifvélavirkjun, 18. maí. Bílamálun í maí (nánari dagsetning auglýst síðar)

Húsasmíði, 14.-16. maí.

Pípulögnum, 9.-11. maí (nýja kerfið) og 22.-25. maí (gamla kerfið).

Múrsmíð, 25. maí -1. júní.

Málaraiðn, 7. maí -16. maí og 25. maí -1. júní.

Sveinspróf í húsgagnasmíði, húsgagnabólstrun, dúklögnum og veggfóðrun, verða haldin í maí og júní.

Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf er til 1. apríl.

Sveinspróf í málmiðngreinum og netagerð verða haldin í maí og júní.

Gull- og silfursmíði og skósmíði í júní.

Hársnyrtiiðn, skriflegt próf 22. maí, verklegt 2.-5. júní.

Snyrtifræði, 11.-13. maí og 19.-20. maí.

Kjólasaumi, 31. maí - 6. júní og klæðskurði, 7.-13. júní.

Bílasmíði, 1. og 2. júní.

Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf er til 1. maí.

Sveinspróf í ljósmyndun verða haldin í september.

Sveinspróf í vélvirkjun verða haldin í október.

Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf er til 1. júní.

Nánari tímasetningar verða auglýstar á heimasíðu okkar www.uns.is.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2007.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður, er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veffang: www.uns.is og á skrifstofunni.

Mat á vinnustaðanámi í fjölmiðlatækni og bókasafnstækni fer fram 1. – 10. maí

IÐAN - fræðslusetur,

Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík,

sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401,

netfang: idan@idan.is


EnskaSkólavefurinnNámskjárinnInna nemendurMenntagáttIðan -fræðsluseturSamband íslenskra framhaldsskólanema MenntamálaráðuneytiðReykdalsfélagiðWorldSkills

Stjórnborð

Stækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Flýtileiðir


Myndir


Vefir

  • Almennt nám
  • Byggingagreinar
  • Hársnyrtiiðn
  • Listnám
  • Málmiðnir
  • Rafiðnir
  • Tækniteiknun
  • Útstillingar