22.11.2006
Sveinspróf

Auglýsing um sveinspróf
Fræðslusetrin að Hallveigarstíg 1, hafa sameinast undir nafninu IÐAN - fræðslusetur.
Sveinspróf í málmiðngreinum, húsasmíði, söðlasmíði, hársnyrtiiðn og snyrtifræði verða haldin í janúar 2007, ef næg þátttaka fæst. Sveinspróf í vélvirkjun verður haldið 2.- 4. mars 2007.
Umsóknarfrestur er til 1. des nk. Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2006.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veffang: www.uns.is
og á skrifstofunni.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður, er mismunandi eftir iðngreinum.
Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík,
sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401,
netfang: idan@idan.is
Leit á vefnum
Flýtileiðir
Myndir




























