Beint á leiðarkerfi vefsins

10.10.2006

Kynning á Þemadögum!

Þemadagar 2006 - Leiðbeiningar fyrir nemendur

 Kynning

1.               Þú þarft að mæta MIÐVIKUDAGINN 11. OKT. kl. 12:00 á þemakynningu og hafa með þér penna eða blýant

 2.              Þú þarft að læra leikreglur á þemadögum, skráningu, mætingu o.fl.

Skrásetning í þema

3.              Skrásetning í þema á fimmtudagsmorguninn

4.               Þú færð þér skrásetningarblað ,,Staðfestingarblað þar sem þú skráir niður þau þemu sem þú velur þér.

5.               Þú velur þér þema sem er í takt við þína stundaskrá. Dæmi:

a.                Ef þú ert í skólanum allan MÁNUDAGINN, þarftu að velja þér þema fyrir allan MÁNUDAGINN, frá kl. 08:05 – 17:00.

b.                Ef þú ert aðeins í skólanum eftir hádegi á mánudag, velur þú þér þema sem er kl. 13:00 og lýkur kl. 17:00 þann dag.

c.                Þú mátt einnig velja þér þema sem er utan þinnar stundaskrár – bæta við þema.

d.               Fjöldi þemustunda þarf að samrýmast fjölda kennslustunda í þinni stundaskrá!

e.               Ef þema felur í sér kostnað þarf að greiða hann fyrirfram á skrifstofunni.

Á þemadögum

6.               Mættu stundvíslega í þema

7.               Þú hefur með þér skrásetningarblaðið í öll þemu og lætur kennara eða umsjónarmenn kvitta á það.

8.               Geymdu skrásetningarblaðið þar til í næstu viku þegar þú kemur í skólann.

9.               Blaðið þarftu að sýna í öllum kennslustundum (áföngum) MÁNUDAGINN 23. OKT., ÞRIÐJUDAGINN 24. OKT og MIÐVIKUDAGINN 25. OKT.  Ef þú tapar blaðinu eða mætir ekki í þema færðu: F = fjarvist.

Góða skemmtun á þemadögum - Kíktu endilega á myndir frá þemadögum í fyrra!


EnskaSkólavefurinnNámskjárinnInna nemendurMenntagáttIðan -fræðsluseturSamband íslenskra framhaldsskólanema MenntamálaráðuneytiðReykdalsfélagiðWorldSkills

Stjórnborð

Stækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Flýtileiðir


Myndir


Vefir

  • Almennt nám
  • Byggingagreinar
  • Hársnyrtiiðn
  • Listnám
  • Málmiðnir
  • Rafiðnir
  • Tækniteiknun
  • Útstillingar