Beint á leiðarkerfi vefsins

25.1.2006

Nýjungar

Iðnskólinn í Hafnarfriði hefur fylgst með örri þróun og framförum á sviði tækni í málmiðnaði og verið í fararbroddi verknámsskóla á þessu sviði með endurnýjun og viðbótum á tækjabúnaði skólans til kennslu.

Við flutning skólans í nýtt húsnæði í byrjun árs 2000 voru allar suðuvélar skólans endurnýjaðar. Einnig var sett upp miðlægt  gaskerfi þar sem gas, hlífðargas og súrefni eru í geymslu utandyra. Fjórar gastegundir eru leiddar þaðan í hvern suðubás (acetylengas, súrefni og tvær gerðir hlífðargass).

Fljótlega eftir flutning í nýtt húsnæði voru keyptar tvær CNC kennsluvélar, rennibekkur og fræsivél auk 12 kennsluborða sem tengd eru vélunum. Um þessar mundir er einn fremur verið er að setja upp nýja CNC stýrða beygjuvél fyrir nemendur. CNC tæknin er allsráðandi í iðnaðarframleiðslu í dag og með því að bjóða nemendum nýjustu tækni í kennslu er verið að mennta mjög frambærilegt fólk fyrir málmiðnaðinn í landinu.

Nemendur skólans eru með námi sínu að öðlast grunnþekkingu á virkni og notkun tölvustýrðra iðnaðarvéla. Þeir kynnast öllum öryggisatriðum í umgengni við slíkar vélar og smíða hluti samkvæmt teikningum í tölvustýrðum iðnaðarvélum hvort sem um er að ræða rennibekki, fræsivélar, skurðarvélar, suðuþjarka eða beygjuvélar.

Rennibekkjum var fjölgað um fjóra með nýrri kynslóð bekkja frá Gildemeister vélaframleiðandanum. Þetta eru handvirkir rennibekkir sem byggja á grunni hálfsjálfvirku bekkjanna frá Gildemeister.

Í tengslum við auknar kröfur í kennslu í aflvélavirkjun hefur skólinn endurbætt kennsluaðstöðu og vélar í þeirri grein. Fyrirtækið John Deere sem Merkúr hf er umboðsaðili fyrir gaf skólanum nýja dieselvél á síðastliðnu ári og er hún tengd vatnsbremsu.  Við bremsuna eru tengdir mælar sem sýna álag og afköst vélarinnar, sem nýtist vel við ýmsar prófanir hvort sem er við kennslu eða í sveinsprófum.

Einnig hefur ötullega verið bætt við kennslubúnað í rafmagns- og loftstýringum og fagteikningu og öll vinnuaðstaða bætt til muna með nýjum áhöldum og verkfærum.

Skólinn hefur haldið grunnnámskeið í rennismíði og fræsingu, rafmagnsfræði og tölvustýrðum iðnaðarvélum í samstarfi við Fræðslumiðstöð málmiðnarins svo starfsmenn fyrirtækja á sviði málmiðnaðar geti styrkt sína fagþekkingu og fylgst með nýjungum.

Nú hefur skólinn einnig gert samning við Verkfræðideild Háskóla Íslands um kennslu fyrir véla- og iðnaðarverkfræðinema í málmiðngreinum þar sem þessi góði véla- og tækjakostur skólans nýtist afar vel og er mikilvæg viðbót við nám þeirra.

Þessi upptalning nær eingöngu til markvissrar uppbyggingar skólans á sviði málmiðnaðar en einnig á sér stað svipuð uppbygging innan annarra deilda skólans sem of langt mál yrði að telja upp hér.


EnskaSkólavefurinnNámskjárinnInna nemendurMenntagáttIðan -fræðsluseturSamband íslenskra framhaldsskólanema MenntamálaráðuneytiðReykdalsfélagiðWorldSkills

Stjórnborð

Stækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Flýtileiðir


Myndir


Vefir

  • Almennt nám
  • Byggingagreinar
  • Hársnyrtiiðn
  • Listnám
  • Málmiðnir
  • Rafiðnir
  • Tækniteiknun
  • Útstillingar