Hársnyrtiiðn


Hársnyrtiiðn er löggilt iðngrein. Heildarnámstími er 4 ár, þar af eru 5 annir í skóla og 72 vikna samningsbundið vinnustaðanám hjá iðnmeistara. Meginmarkmið með náminu er að gera nemendur færa um að veita viðskiptavinum persónulega þjónustu á sínu sérsviði. Nemendur fá leiðsögn um meðferð hárs ásamt litun og hönnun hárgreiðslu með hliðsjón af óskum viðskiptavinar, útliti, persónugerð, hárgerð og tísku. Einnig læra þeir um snyrtingu og hönnun hárs og skeggs. Náminu lýkur með sveinsprófi sem veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Comments are closed.