Bygginga- og mannvirkjagreinar
Deildarstjóri: Hrafnkell Marinósson

Nám í bygginga- og mannvirkjagreinum hefst með einnar annar sameiginlegu grunnnámi en að því loknu velja nemendur fagnám í húsasmíði, húsgagnasmíði, málaraiðn, múraraiðn, pípulögnum eða veggfóðrun/dúkalögn. Fagnámið skiptist í tvennt, annars vegar bóklegt og verklegt nám í skóla og hins vegar vinnustaðanám hjá iðnmeistara.
Skólinn býður fagnám í húsasmíði og pípulögnum. Heildarnámstími er að jafnaði 4 ár og þar af er samningsbundið vinnustaðanám hjá iðnmeistara 72-96 vikur eftir iðngreinum. Náminu lýkur með sveinsprófi sem veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Leit á vefnum
Flýtileiðir
Myndir




























