Almennt Nám


Meginmarkmið almenna námsins er að efla frumkvæði og sjálfstæði til náms á eigin forsendum og að veita nemendum hagnýta, fræðilega og skapandi menntun. Námið er fyrst og fremst ætlað nemendum sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi með fullnægjandi árangri (ANA) en nemendum sem eru óákveðnir stendur einnig til boða að hefja nám í bóklegum greinum á almennri braut (ANC).

Grunnurinn að námsframboðinu (ANA) er byggður á hefðbundnu bóknámi og verknámi með nýjum áherslum. Áhersla er lögð á að bæta undirstöðu nemenda í kjarnagreinum sem eru íslenska, stærðfræði, enska, danska, lífsleikni og líkams- og heilsurækt. Einnig er fjallað um námstækni og verklegar greinar kynntar. Að námi loknu eiga nemendur að vera færir um að hefja nám á einhverri af brautum skólans.

Comments are closed.